dagga's Xanga SiteDagný
dagga
read my profile
sign my guestbook

Visit dagga's Xanga Site!

Name: Dagný
Country: Iceland
Birthday: 11/20/1988
Gender: Female


Interests: music, dance, family, sports
Expertise: student
Occupation: Student
Industry: Other


Message: message me


Member Since: 9/6/2002

SubscriptionsSites I Read
Hjordis_Osp
Ioan
Birgir
Gudrun
ernam

Posting Calendar

|<< oldest | newest >>|
view all weblog archives

Get Involved!

Suggest a link

Recommend to friend

Create a site


Saturday, April 05, 2003

Ú ég gleymdi í gær að segja ykkur að það er komið tívolí hjá mollinu!!!!  ÉG hef samt ekki séð það alveg nógu vel, ég veit að það eru ekkert einhver hjúds tæki en ég vona að það séu allavega nokkur skemmtileg.  Þannig að það getur verið að ég fari í það einhvern tíma um helgina.  Annars er búið að vera að snjóa í allann morgunn þannig að ég veit ekki alveg hvernig það fer.  En allavega bara svona smá fréttir

bæjó


SARS í B.C.  (þar sem að ég bý)

Hafið þið eitthvað heyrt um SARS, það er eins konar lungabólga eða eitthvað þannig og er mest að koma frá Asíu og Víetnam og eitthvað af þeim löndum.  Allavega þá hljótið þið að hafa heyrt eitthvað um þetta því að það er fólk að deyja um allann heim af þessu.  En þetta er alveg rosalega smitandi og það þarf ekki nema að sitja til dæmis við hliðina á manneskjunni þá getur maður smitast og það er ekki til nein meðul, þannig að fók deyr bara án þess að það sé hægt að gera nokkuð.  Þetta er sem sagt núna komið til B.C. þar sem að ég bý og ég held meira að segja að það hafi verið ein kona í hverfinu mínu(Coquitlam) sem að dó úr þessu.  Og af því að þetta er svo smitandi þá getur verið að ef að einhver nemandi í skólanum mínum fær þetta og það er ekki búið að uppgötvast þá getur sá aðili smitað mann og þá væri maður orðinn veikur.  Þetta er ekkert smá scary að hugsa út í þetta......  En allavega þá er allt gott að frétta af mér.  ég er bara að læra á fullu eins og alltaf, þið getið ekki trúað hvað það er mikið að læra hjá mér alltaf, ég geri ekkert annað en að læra ALLANN daginn..... ég er reyndar farin að venjast því þannig að mér finnst það bara gaman.  mmmmm, já ég er að fara 4 maí á svona skautasýningu þar sem að allir frægustu listskautadansara eru að sýna (fyrir þá sem ekki vita þá dýrka ég að horfa á listskauta).  Þessi sýning heitir "Stars on Ice".  Ég hlakka ekkert smá mikið til að fara... ég er nefla búin að sjá auglýsinguna og það er fullt af fólki sem að ég er búin að vera að horfa á í sjónvarpinu vera að keppa sem að eru að sýna þarna.  Ég verð reyndar ekkert á sérstökum stað en það var af því að ég var svo sein að panta miðann að það var ekkert annað laust...... en ég fer þó!  Jæja ég held að þetta sé komið í bili, nema það að ég er að fara að fá report card núna 17 apríl í skólanum...... vonandi lítur það ágætlega út.  en jæja heyri í ykkur seinna bæ bæ


Wednesday, March 19, 2003

Hæ hæ allir........ Jæja núna er ég komin aftur frá Galiano, eyjunni sem að ég var á. það var alveg rosalega gaman en húsið var samt soldið gamalt og þegar að maður fór í sturtu þá var maður með útsýni yfir pöddulíf (köngulær) og svona skemmtileg heit.   En þetta var samt mjög gaman að prófa eitthvað svona nýtt.  Núna er pabbi farinn aftur til Íslands og ég held að hann komi aftur eftir sirka einn og hálfann mánuð. Svo byrja ég aftur í skólanum á mánudag. Jæja það er svo sem ekkert meira í fréttum hérna......... skrifa vonandi fljótlega aftur

bæjó


Wednesday, March 12, 2003

http://www.gulfislands.com/cliff_pagoda/
Þetta er slóðin á húsið sem að við fáum, og við fáum það allt.............


Hæ hæ allir..... ég er veik núna þannig að ég fór ekki í skólann í gær eða í dag.... En vitið þið hvað!!!!!!! það er að koma spring break hjá mér núna eftir helgi og á föstudaginn fáum ég Hjördís og Dave frí í skolanum því að við erum að fara út á eyju (victoríu eyja, þar er höfuðborg Canada) og við íslensku fjölskyldurnar erum búnar að leigja heillt hús sem að er vanalega Bed and Breakfast þar sem að fólk leigir eitt og eitt herbergi en eigendurnir eru að fara eitthvað þannig að við fáum húsið sem að er með heitapotti, sánu, það er KLIKKAÐ útsýni og svo erum við auðvitað líka með svítu herbergin....... þannig að þetta á eftir að vera klikkað stuð! en við förum með ferju á föstudagsmorgninum út á eyju þannig að við krakkarnir þurfum að fá frí á föstudaginn, sem er reyndar ekki nógu gott fyrir mig þar sem að ég er nú þegar búin að missa 2 daga úr skólanum, en ég næ því bara upp í spring breakinu.  jíbbí en ég skrifa seinna bæjó  



Next 5 >>